16.12.20
Fréttir
Fréttatilkynning vegna aurflóða á Seyðisfirði
Heldur dró úr úrkomu og vatnsaga á Seyðisfirði í gærkvöldi og nótt. Síðasta aurskriðan sem vitað er um féll um klukkan tíu í gærkvöldi en eftir það virðist ástand hafa náð meira jafnvægi. Engar skriður hafa fallið í morgun eftir því sem best er vitað. Beðið er birtingar til að kanna betur aðstæður.
Íbúar sem rýmt hafa hús sín og þurfa nauðsynjar eru hvattir til að leita í Sæból, hús björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Þar bíður aðstoð við að fara inn á svæðið auk nýjustu upplýsinga.