Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

66. fundur 05. febrúar 2026 kl. 09:00 - 11:50 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Eyþór Stefánsson formaður
  • Elísabet Dögg Sveinsdóttir aðalmaður
  • Jón Sigmar Sigmarsson varamaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Gjaldskrá Fjarðarborgar

Málsnúmer 202601139Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til endurskoðunar verðskrá Fjarðarborgar.
Starfsmanni heimastjórnar falið að uppfæra verðskrá í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu og málinu vísað til byggðaráðs til staðfestingar.

2.Sala á áhaldahúsi á Borgarfirði eystra

Málsnúmer 202601069Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað dagsett 8. janúar 2026 frá sviðstjóra framkvæmda og slökkviliðsstjóra Múlaþings þar sem lagt er til að Múlaþing gangi til samninga við björgunarsveitina Sveinunga á Borgarfirði um kaup Sveinunga á 25% hluta áhaldahússins, F2319737, Borgarfirði.

Byggðaráð tók málið fyrir á fundi sínum 20. janúar 2026 og bókaði eftirfarandi:

Byggðaráð tekur vel í að selja Björgunarsveitinni Sveinunga 25% hlut í áhaldahúsinu, F2319737, á Borgarfirði eystra, en óskar eftir umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar um málið. Málið kemur svo aftur til afgeiðslu byggðaráðs þegar umsögn heimastjórnar hefur borist.
Heimastjórn tekur vel í hugmyndir um söluna til Sveinunga en vekur athygli á að um er að ræða sölu á 25% eignarhlut í Heiðinni, sem hýsir björgunarmiðstöð Sveinunga og slökkviliðs annars vegar og endurvinnslu hins vegar, en ekki áhaldahúsið sjálft. Þessi tvö hús eru skráð á sama fasteignanúmer, F2319737, og þarf að hafa það í huga við frágang sölunnar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu og málinu vísað til byggðaráðs til afgreiðslu.

3.Umsagnarbeiðni um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 til

Málsnúmer 202601146Vakta málsnúmer

Fyrir liggur frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar 322. mál, Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9. febrúar nk.

Byggðaráð samþykkti á fundi sínum 3. febrúar síðastliðinn drög að umsögn en óskaði jafnframt eftir umsögnum heimastjórnanna.

Heimastjórn samþykkir að fela starfsmanni heimastjórnar að taka saman minnisblað um þau atriði sem snerta Borgarfjörð í áætluninni, til dæmis vetrarþjónustu, sjóvarnir og Hafnarveg.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2. febrúar 2026 þar sem eftirfarandi var bókað:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir hugmyndum heimastjórna að samfélagsverkefnum í samræmi við fjárhagsáætlun og umræður á fundinum og felur sviðsstjóra framkvæmda að fylgja málinu eftir til formanna heimastjórna. Skipting fjármuna verður óbreytt frá fyrri árum þegar heimastjórnir Borgarfjarðar, Djúpavogs og Seyðisfjarðar fengu 2 milljónir hver til umráða og heimastjórn Fljótsdalshéraðs 4 milljónir.
Heimastjórn felur starfsmanni að auglýsa eftir hugmyndum íbúa að samfélagsverkefnum 2026. Frestur til að skila inn hugmyndum er til 26. febrúar næstkomandi.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Fasteignir í Múlaþingi

Málsnúmer 202511191Vakta málsnúmer

Byggðaráð bókaði á fundi sínum 25. nóvember síðastliðinn um sölu á fasteignum í Múlaþingi, þar á meðal Víkurnesi 2.
Sveitarstjóri og fjármálastjóri komu inn á fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar þeim fyrir komuna á fundinn.
Heimastjórn hefur frá sameiningu ítrekað fjallað um leiguíbúðir á Borgarfirði og ráðstöfun þeirra. Heimastjórn lýsir yfir vonbrigðum með málsmeðferðina og að hennar fyrri bókanir hafi ekki verið hafðar til hliðsjónar. Þessi málaflokkur er íbúum Borgarfjarðar mjög mikilvægur. Í aðdraganda sameiningar 2020 var sagt að leiguíbúðir á staðnum yrðu ekki seldar og viðhaldsþörf þeirra metin sem innviðaskuld Borgarfjarðar inn í sameiningu. Í byggðaþróunarlegu tilliti eru þær staðnum mikilvægar enda oft og tíðum eina leið nýbúa inn á svæðið.
Heimastjórn Borgarfjarðar vonar að í framtíðinni verði leitað álits heimastjórna við ákvarðanir stórra mála er varða nærumhverfi þeirra.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Guðlaugur Sæbjörnsson - mæting: 10:30
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir - mæting: 10:30

6.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202212043Vakta málsnúmer

Endurnýjun gömlu löndunarbryggju: Verkið er hafið; búið er að færa olíutank og -dælu og vatn yfir á nýju löndunarbryggju, aftengja rafmagn og þar með krana. Verktaki mun hefjast handa við að flytja tæki og búnað á Borgarfjörð á næstunni.

Tjaldsvæði: Útboð stendur yfir og er frestur til að skila inn tilboðum til 23. febrúar næstkomandi. Frekari upplýsingar er að finna hér: https://www.mulathing.is/is/frettir/auglysing-um-utbod-a-rekstri-tjaldsvaedis-a-borgarfirdi-eystra

Umhverfisviðurkenningar Múlaþings 2025: Bryndís Snjólfsdóttir í Réttarholti hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóð við íbúðarhús og var það einstaklega verðskuldað.

Íbúðir: Verið er að taka í gegn Ásbrún 2. Gert er ráð fyrir að Ásbrún 2 og Dagsbrún 2 verði auglýstar til leigu í mars.

Menningarstyrkir Múlaþings: Fyrri úthlutun ársins hefur verið kunngjörð og ljóst að menningarsumarið á Borgarfirði verður blómlegt en fimm verkefni og viðburðir tengdir Borgarfirði fengu styrk.

7.Fundir Heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202010615Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Borgarfjarðar verður fimmtudaginn 5. mars 2026. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 mánudaginn 2. mars. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið - kl. 11:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?