Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

56. fundur 08. maí 2025 kl. 08:30 - 11:20 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Jón Halldór Guðmundsson aðalmaður
  • Snorri Emilsson varamaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 28.4.2025 var vinnslutillögu aðalskipulags vísað til umsagnar hjá byggðaráði, fjölskylduráði, heimastjórnum, ungmennaráði, öldungaráði og starfshópi um málefni fatlaðs fólks. Vakin er athygli að gögn vegna vinnu við aðalskipulagið má finna hér https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1030
Lagt fram til kynningar.


2.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna fyrir seinni hluta árs 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi tillögur að fundardagatali sveitarstjórnar og fastanefnda Múlaþings júlí til og með desember 2025.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Erindi er varðar ráðningastefnu Múlaþings varðandi sumarstörf ungmenna á Seyðisfirði

Málsnúmer 202504259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja erindi frá Elvu Ásgeirsdóttur og Höllu Dröfn Þorsteinsdóttur er varðar breytingar á ráðningum ungmenna 16-18 ára á Seyðisfirði sumarið 2025. Jón Kristófer Arnarson garðyrkjustjóri situr fundinn undir þessum lið og fer yfir stöðu mála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar þakkar Jóni Kristófer Arnarsyni fyrir komuna, góða yfirferð og greinargóð svör. Heimastjórn harmar, að upp sé komin sú staða að ungmenni á Seyðisfirði 16 (á 17.ári) og 17 (á 18.ári) séu atvinnulaus þar sem enga vinnu virðist vera að fá.
Heimastjórn óskar eftir því við umhverfis- og framkvæmdaráð, sem fer með málefni vinnuskólans í Múlaþingi, að leyst verði úr þessum málum fyrir ungmenni á Seyðisfirði. Heimastjórn leggur til að 17 ára börn verði ráðin inn í vinnuskólann í sumar í ljósi aðstæðna og atvinnuástands á Seyðisfirði. Einnig leggur heimastjórn til að skoðaður verði möguleikinn á því að boðið verði uppá vinnuskóla til framtíðar fyrir þennan aldur. Heimastjórn felur starfsmanni að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Gestir

  • Jón Kristófer Arnarson - mæting: 09:20

4.Flugvöllurinn á Seyðisfirði - malartekja

Málsnúmer 202504261Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fyrirspurn frá framkvæmda- og umhverfismálastjóra er varðar hugmynd um að fá að nýta efnið í gamla flugvellinum vegna mikils efnisskorts á Seyðisfirði. Hugrún Hjálmarsdóttir situr fundinn undir þessum lið og fylgir málinu eftir.
Heimastjórn Seyðisfjarðar setur sig ekki upp á móti að efnistaka verði leyfð af flugvellinum ef brýna nauðsyn ber til. Völlurinn er ekki skráður og í mjög takmarkaðri notkun og aldrei í neyðartilfellum en er þó hluti af innviðum, jafnframt er mikilvægt að aðgangur sé að efni til framkvæmda.
Heimastjórn vill koma því á framfæri að verði af efnistöku er mikilvægt að gengið verði vel um svæðið og það verði aðlaðandi til útivistar. Einnig bendir heimastjórn á að mikilvægt er að veginum út í Skálanes verði viðhaldið og nauðsynlegt er að hafa áfram bíla- og rútustæði á svæðinu vegna útivistarmöguleika.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Íbúafundur heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202209057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að ákveða dagsetningu á næsta íbúafundi heimastjórnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar samþykkir að næsti íbúafundur verði haldinn í Herðubreið miðvikudaginn 4. júní nk. kl.17:00. Starfsmanni og formanni heimastjórnar falið að undirbúa og auglýsa fundinn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 11:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?