Fara í efni

Yfirlit frétta

Ný frétt - Niðurstaða gagnagreiningar
22.12.20 Fréttir

Ný frétt - Niðurstaða gagnagreiningar

Niðurstaða gagnagreiningar milli kl. 20 og 21 Beðið er niðurstöðu gagnagreiningar eftir daginn. Henni lýkur ekki fyrir klukkan 19 líkt og gert var ráð fyrir. Að því sögðu er stefnt að því að tilkynning um mögulega afléttingu rýmingar í tilteknum götum verði send milli klukkan 20 og 21 í kvöld.
Herðubreið Seyðisfjörður
22.12.20 Fréttir

Þjónustumiðstöð almannavarna á Seyðisfirði

Þjónustumiðstöð almannavarna hefur verið opnuð á Seyðisfirði. Ríkislögreglustjóri hefur heimild til að starfrækja tímabundna þjónustumiðstöð þegar hættu ber að garði eða hún er um garð gengin.
Seyðisfjörður
22.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði – rýming og samband við íbúa

Greining gagna og mat á stöðugleika á rýmingarsvæði hefur staðið yfir og er metið reglulega. Aðstæður hafa farið hratt batnandi eftir að rigningu slotaði og kólnaði í veðri. Hins vegar er gert ráð fyrir að hlýni að nýju í skamman tíma á aðfanga- og jóladag. Því munu hús sem efst eru í byggðinni í jaðri rýmingarsvæðis haldast óbreytt í rýmingu til 27. desember að minnsta kosti.
Herðubreið
22.12.20 Fréttir

Fulltrúar NTÍ til viðtals í Herðubreið

Fulltrúar frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands verða í dag, 22. desember, í Þjónustumiðstöðinni í Herðubreið á Seyðisfirði, til viðtals og ráðgjafar.
Mynd frá Seyðisfyrði
21.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - rýming

Enn er verið að rýna gögn er varða stöðugleika á svæðinu. Samkvæmt mati þykir rétt að halda rýmingu áfram óbreyttri til morguns.
Aurskriður á Seyðisfirði - rýming - mat á gögnum
21.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - rýming - mat á gögnum

Verið er að rýna gögn sem safnað hefur verið og varða meðal annars stöðugleika ofan við rýmd hús á Seyðisfirði. Vonir standa til að niðurstaða liggi fyrir síðar í dag. Ákvörðun verður í kjölfarið tekin um mögulega afléttingu rýmingar og þá hversu mikil hún verður. Óvissa er enn til staðar og kann því að vera að rýming verði óbreytt og staðan tekin að nýju í fyrramálið.
Seyðisfjörður
21.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - Verið er að kanna stöðugleika ofan við rýmd hús á Seyðisfirði

Enn er verið að kanna og meta stöðugleika ofan við rýmd hús á Seyðisfirði auk þess sem unnið er að lagfæringu innviða. Á meðan sú vinna er í gangi þykir ekki óhætt að aflétta frekari rýmingu. Mat á rýmingarþörf er hinsvegar stöðugt í gangi. Næstu tilkynninga er að vænta milli klukkan 14 og 15 í dag.
Covid-19 Seyðisfjörður
21.12.20 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - Covid-19

Með vísan til atburða á Seyðisfirði vekur aðgerðastjórn sérstaka áherslu á mikilvægi þess að við gætum í hvívetna að sóttvörnum á svæðinu öllu og ekki síst í kringum þá umferð og vinnu sem er á Seyðisfirði og á Egilsstöðum.
Egilsstaðarskóli
20.12.20 Fréttir

Hjálparstöðin opin í Egilsstaðaskóla 21. desember

Fjöldahjálparstöðin í Egilsstaðaskóla verður opin frá kl. 8 mánudaginn 21. desember og verður opin til kl. 21.
Seyðisfjörður
20.12.20 Fréttir

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi: Neyðarstig almannavarna fært niður í hættustig á Seyðisfirði – Aflétting rýmingar að hluta.

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi: Neyðarstig almannavarna fært niður í hættustig á Seyðisfirði – Aflétting rýmingar að hluta.
Getum við bætt efni þessarar síðu?