Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

151. fundur 29. apríl 2025 kl. 08:00 - 11:50 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri
  • Inga Þorvaldsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi á stjórnsýslusviði
Sigurður Gunnarsson og Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir (fræðslustjóri) sátu fundinn undir lið nr.2 og Rúnar Matthíasson(verkefnastjóri framkvæmdamála) sat fundinn undir lið nr.3.

1.Fjármál 2025

Málsnúmer 202501003Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og fjármálastjóri fóru yfir mál er varða fjárhag sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2025 - 2028. Viðauki 1

Málsnúmer 202404017Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 til að mæta auknum kostnaði við nýja kjarasamninga kennara.
Fjármálastjóri fór yfir fyrirliggjandi tillögur að viðauka við samþykkta fjárhagsáætlun Múlaþings sem eru til komnar vegna breyttra forsendna í rekstri.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka 1 sem felur í sér eftirfarandi breytingar á viðkomandi málaflokkum í A-hluta:

00 Skatttekjur, útsvar, hækkun tekna 68.612 þús.kr.
00 Skatttekjur, fasteignaskattur, hækkun tekna 10.000 þús.kr.
00 Skatttekjur, Jöfnunarsjóður, hækkun tekna 55.000 þús.kr

04 Fræðslu og uppeldismál, hækkun launakostnaðar -190.998 þús.kr.
04 Fræðslu- og uppeldismál, útgjaldalækkun 27.388 þús.kr.

08 Hreinlætismál, hækkun sorpgjalda 30.000 þús.kr.

28 Fjármagnsliðir, lækkun 729 þús.kr.

31 Eignasjóður, afskriftir fastafjármuna hækkun -1.025 þús.kr.

Rekstarniðurstaða A hluta lækkun 296 þús.kr.


Fjárfestingahreyfingar:
Lyngás 12, kaup húsnæðis á neðri hæð. Eignasjóður -82.000 þús.kr.
Eignahlutir í félögum, hækkun stofnframlaga. Félagslegar íbúðir v. Brák -31.600 þús.kr.

Breyting á rekstartengdum eignum og skuldum:
Gamla ríkið endurgreitt fyrirframgreitt framlag, -49.327 þús.kr.
Skilavegir, fyrirframgreiðsla vegna framkvæmda árið 2025, -39.466 þús.kr.

Handbært fé:
Handbært fé, lækkun -202.687 þús.kr.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Þröstur Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Ég geri þá athugasemd/fyrirvara við þennan viðauka að hér er verið að bregðast við auknum kostnaði af verktökusamningi Múlaþings við ríkið vegna reksturs grunnskóla án þess að til komi aukin framlög verkkaupans, þ.e. ríkisins. Kostnaðaraukinn af rekstri grunnskóla fellur alfarið á sveitarfélagið sem það neyðist til að taka af tekjum sem ætlaðar voru til annarra hluta, auk niðurskurðar útgjalda ótengdum rekstri grunnskóla að hluta.

3.Faktorshúsið Djúpavogi

Málsnúmer 202103213Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að uppfærðum leigusamningi vegna Faktorshússins á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjóra falið að uppfæra drög að leigusamningi vegna Faktorshússins á Djúpavogi samkvæmt umræðu á fundinum. Leigusamningur tekin fyrir að nýju er endanleg tillaga liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Gamla kirkjan á Djúpavogi

Málsnúmer 202106143Vakta málsnúmer

Fyrir liggur viljayfirlýsing til samtals við Hollvinasamtök um gömlu kirkjuna vegna uppbyggingar og starfsemi gömlu kirkjunnar á Djúpavogi. Hollvinasamtökin hafa lýst yfir vilja til þess að taka húsnæðið að sér og Múlaþing hefur lýst yfir vilja til samtals um það.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem Hollvinasamtök um gömlu kirkjuna á Djúpavogi hafa unnið við uppgerð á húsnæðinu. Byggðaráð felur sveitarstjóra að eiga áframhaldandi samtal við hollvinasamtökin um að þau taki við húsnæðinu og leggja drög að samningi samkvæmt áherslum byggðaráðs. Samningurinn fari til umsagnar hjá Heimastjórn Djúpavogs og komi svo til afgreiðslu í byggðaráði.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Aðstaða fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 202410106Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samningur um áframhaldandi leigu á aðstöðu fyrir kjörna fulltrúa á Setrinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir fyrirliggjandi samning frá Setrinu varðandi áframhaldandi leigu á aðstöðu fyrir kjörna fulltrúa og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundardagatali sveitarstjórnar,fagráða og heimastjórna tímabilið júlí til desember 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að fundardagatali sveitastjórnar, fagráða og heimastjórna út árið 2025 og vísar málinu til afgreiðslu hjá sveitastjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Aksturssvæði undir Skagafelli í Eyvindarárdal

Málsnúmer 202503164Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um rekstur akstursíþróttasvæðis á skipulögðu svæði fyrir akstursíþróttir undir Skagafelli í Eyvindarárdal, í Múlaþingi, en frestur til að skila inn umsóknum rann út 23. apríl 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við Akstursíþróttaklúbbinn Start um afnot af umræddu svæði fyrir akstursíþróttir, í samræmi við þau samningsdrög sem fyrir liggja.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Þátttaka í bakhóp

Málsnúmer 202504198Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir áhugasömum um þátttöku í bakhóp til ráðgjafar og stuðnings við framkvæmd verkefnis sem miðar að því að efla öryggi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings beinir því til áhugasamra kjörinna fulltrúa að bjóða sig fram í bakhóp Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hefur það markmið að efla öryggi kjörinna fulltrúa í sveitastjórnum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Aðalfundur Vísindagarðsins 2025

Málsnúmer 202504156Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð aðalfundar Vísindagarðsins efh sem haldinn verður 12. maí 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að sveitastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, fari með umboð og atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi Vísindagarðsins ehf. sem verður haldinn 12. maí 2025.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Stjórnarfundur Vísindagarðsins ehf 14. apríl 2025

Málsnúmer 202504152Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð stjórnar Vísindagarðsins ehf frá 14. apríl 2025. Einnig liggur fyrir ársreikningur Vísindagarðsins ehf fyrir árið 2024.
Lagt fram til kynningar

11.Fundargerðir stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202502056Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags.19.mars, 28.mars og 1.apríl 2025.
Lagt fram til kynningar

12.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202502016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundagerð Samband íslenskra sveitarfélaga dags.4.apríl.2025.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 11:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?