Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

59. fundur 08. maí 2025 kl. 08:30 - 11:45 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Eyþór Stefánsson formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Ragna Stefanía Óskarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna fyrir fyrri hluta árs 2025.
Heimastjórn áætlar að halda fundi sína í júní, júlí og ágúst á föstudögum, degi síðar en fundadagatal gerir ráð fyrir. Samþykkt að öðru leyti.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

2.Málefni Fjarðarborgar

Málsnúmer 202408007Vakta málsnúmer

Inn á fundinn komu Vordís Jónsdóttir verkefnastjóri á framkvæmdasviði og Jón Grétar Traustason frá Eflu, byggingastjóri Fjarðarborgar.
Fóru þau yfir þær framkvæmdir sem eftir eru í Fjarðarborg en stefnt er á að ljúka verkinu í árslok. Í maí verður efri hæð hússins kláruð; salerni, eldhúskrókur, gólfefni og stigi. Lyftan verður klár í lok maí. Á neðri hæð verður forstofan flísalögð. Haldið verður áfram að klæða húsið að utan í sumar. Í haust verða salerni á neðri hæð tekin í gegn, gluggar settir í sal og klæðning kláruð. Loftræstikerfi sett upp.
Einnig var rætt um ástand kjallarans undir sviði þar sem flæddi vatn síðasta sumar. Drena þarf utanhúss áður en farið er í viðgerðir þar. Viðgerðin er ekki hluti af endurnýjun Fjarðarborgar en mikilvægt að koma inn á viðhaldsáætlun.

Gestir

  • Vordís Jónsdóttir - mæting: 08:30
  • Jón Grétar Traustason - mæting: 08:30

3.Fjárhagsáætlun Múlaþing 2026 til 2029

Málsnúmer 202504066Vakta málsnúmer

Unnið er að fjárhagsáætlun Múlaþings 2026-29 og óskað hefur verið eftir áherslum heimastjórna.
Heimastjórn bendir á að á umræddu tímabili er ekkert fé áætlað í nýframkvæmdir á Borgarfirði og því finnst heimastjórn eðlilegt að litið sé sérstaklega til nauðsynlegra viðhaldsframkvæmda á staðnum þegar fjármagni verður úthlutað.
- Klæða leiguíbúðir að utanverðu og skipta út gólfefnum og innréttingum eftir því sem við á.
- Endurnýja og bæta götulýsingu.
- Halda áfram að endurnýja gangstéttir.
- Skipuleggja almenn bílastæði í þorpinu og merkja sérstaklega, t.d. við Sparkhöll, Dúntún og kirkju. Vinaminnisplan verði áningarstaður fólks en ekki bíla.
- Kaupa þarf lyftara fyrir höfnina.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Kröfur ríkisins um þjóðlendur á svæði 12, eyjar og sker

Málsnúmer 202402224Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tölvupóstar frá Jóni Jónssyni lögmanni, dagsettir 10. og 11. apríl 2025 þar sem fjallað er um stöðu mála í kröfum ríkisins um þjóðlendur á svæði 12, eyar og sker. Jón hefur m.a. unnið greinargerð þar sem hann rökstyður að eyjar og sker úti fyrir landi hafi í skilningi Jónsbókar talist eign þeirra sem æættu landið sem þær væru við. Umræddar eyjar og sker eru úti fyrir Njarðvík, Brúnavík og Hvalvík. Óbyggðanefnd hefur fallist á rök Jóns í þessu máli og vísað málinu áfram til lögmanna íslenska ríkisins. Viðbragða er að vænta frá þeim á næstu vikum.

Heimastjórn Borgarfjarðar þakkar Jóni Jónssyni fyrir þá miklu vinnu sem hann hefur innt af hendi í þessu mái og er bjartsýn á jákvæða niðurstöðu fyrir landeigendur.

5.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði vinnslutillögu aðalskipulags til umsagnar hjá byggðaráði, fjölskylduráði, heimastjórnum, ungmennaráði, öldungaráði og starfshópi um málefni fatlaðs fólks en hún er nú í kynningarferli skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Íbúafundur var haldinn á Borgarfirði 3. apríl síðastliðinn og hvetur heimastjórn íbúa til að skila inn sínum athugasemdum en fresturinn rennur út 13. maí. Hér er hlekkur á öll gögn: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1030
Heimastjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu en bendir á að mikilvægt er að skoða vel reiti ÍB907 og ÍB904 með tilliti til þess hvar skipulagðar verða lóðir fyrir minni hús.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Víknaslóðir, leyfisbeiðni vegna viðbótar við leiðarkerfi

Málsnúmer 202504009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Árna Magnúsi Magnusson og ferðamálahópi Borgarfjarðar, dagsett 2.4.2025, um leyfi til að bæta við göngu- og hjólaleið í leiðarkerfi Víknaslóða.
Heimastjórn lýsir ánægju með að ferðamálahópur Borgarfjarðar haldi áfram að huga að viðhaldi og auki við leiðarkerfi Víknaslóða fyrir göngu- og hjólafólk, enda sé full sátt við alla landeigiendur þar um og gerir ekki athugasemdir við beiðnina. Starfsmanni heimastjórnar falið að koma málinu í farveg.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202212043Vakta málsnúmer

Vegagerð á Hafnarvegi: Verktaki stefnir á að setja niður pípuhlið og klára að gera tilbúið fyrir klæðingu í næstu viku. Klæðing verður lögð í lok maí.

Hafnarhólmi: Verið er að undirbúa uppsetningu gjaldtökukerfis og verður það sett upp eftir miðjan maí. Sama á við um kynningarefni um hólmann í Hafnarhúsi. Gjaldi í hólmann er stillt í hóf, verður rukkað pr. farartæki og gildir fyrir heilan dag:

Bifhjól: 400 kr.
Einkabifreið, 1-5 farþegar: 1.000 kr.
Stærri einkabifreið 6-9 farþegar: 1.500 kr.
Hópferðabílar, 10-19 farþegar: 2.200 kr.
Hópferðabílar, 20-32 farþegar: 5.000 kr.
Hópferðabílar, 33 farþegar eða fleiri 8.500 kr.
Sumarpassi fólksbíls (maí-ágúst): 2.500 kr.

Höfnin: Höfnin verður malbikuð í sumarlok og er sú framkvæmd í hönnun núna hjá sveitarfélaginu. Vegagerðin hefur sent inn uppfært kostnaðarmat og drög að teikningu (sjá viðhengi) vegna endurbyggingar gömlu löndunarbryggjunnar, sem er orðin afar léleg. Hönnunarvinna verður kláruð í sumar og efnispöntun gerð í kjölfari.

Fyrsti áfangi við að endurnýja gangstéttir við þorpsgötuna er áætlaður að hefjist í lok maí/byrjun júní og verður byrjað frá tjaldsvæði.

Heimastjórn samþykkti að verja fjármagni sem ætlað var í samfélagsverkefni í hugmynd grunnskólabarna Borgarfjarðar um að útbúa gott leiksvæði á balanum milli Sparkhallar, Fjarðarborgar og grunnskóla. Verið að panta leiktækin og fljótlega fara starfsmenn áhaldahúss í að undirbúa svæðið.

Áhaldahússtarfsmenn munu á næstunni snurfusa Lindarbakka og í kringum hann: Laga girðingar og mála húsið. Ferðamálahópur Borgarfjarðar og Félag fjarbúa hafa tekið höndum saman um að endurnýja og uppfæra skiltið við Lindarbakka. Í bígerð er að stofna Hollvinafélag Lindarbakka og verður það kynnt betur síðar.

Starfsmenn áhaldahúss eru í vorverkunum og verður farið í að laga þorpsgirðinguna, holuviðgerðir á götum innanbæjar og þökulagningu í mánuðinum.

Sveitarfélagið og Borgarhöfn ehf. í Njarðvík sóttu um styrk fyrir tilraunaverkefni um almenningssamgöngur milli Borgarfjarðar og Egilsstaða í sjóð A.10 Almenningssamgöngur á milli byggða í byggðaáætlun í þeirri von að geta haldið úti reglulegum ferðum áfram en sem kunnugt er sagði Vegagerðin upp samningi við Borgarhöfn um áramót. Niðurstaða ætti að liggja fyrir í júní.

8.Fundir Heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202010615Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Borgarfjarðar er fyrirhugaður föstudaginn 6. júní 2025. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 mánudaginn 2. júní. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið - kl. 11:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?