Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, Svörtu Sandar, vegslóði og bílastæði

Málsnúmer 202604196

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 183. fundur - 18.05.2026

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð nýs vegslóða og bílastæða við Svörtu Sanda á Búlandsnesi.
Framkvæmdin er í samræmi við skilmála aðalskipulags en ekkert deiliskipulag er í gildi og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til grenndarkynningar.
Umsögn náttúruverndarndarnefndar liggur fyrir þar sem athygli er vakin á því að framkvæmdir hefjist ekki fyrr en eftir 15. júlí þegar varptíma er lokið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Djúpavogs á miðlum sveitarfélagsins.
Málið verður tekið aftur fyrir að grenndarkynningu lokinni.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 188. fundur - 06.07.2026

Grenndarkynningu fyrirhugaðra áforma um gerð bílastæðis og vegslóða út á sanda á Búlandsnesi lauk þann 17. júní síðastliðinn. Þrettán athugasemdir bárust í gegnum Skipulagsgátt og liggur fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði að taka afstöðu til þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Áður en til frekari greininga og hönnunar kemur telur umhverfis- og framkvæmdaráð mikilvægt að óska eftir umsögn frá Isavia ohf. og Norlandair um raunverulegt notkunargildi flugvallarins með hliðsjón af hlutverki hans í sjúkraflutningum.

Afgreiðslu vegna grenndarkynningar er frestað þar til frekari gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 189. fundur - 17.08.2026

Á 188. fundi umhverfis- og framkvæmdaráð var afgreiðslu grenndarkynningar frestað, en ráðið óskað eftir því að fá umsagnir frá Isavia innanlandsflugvöllum ohf. og Norlandair vegna notkunargildis flugbrautarinnar með hliðsjón af hlutverki hennar til sjúkraflutninga.

Umsagnir beggja aðila liggja nú fyrir. Málið er því lagt fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð að nýju til afgreiðslu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til fyrirhugaðrar framkvæmdar, með hliðsjón af athugasemdum sem bárust við grenndarkynningu og fyrirliggjandi umsögnum Isavia Innanlandsflugvalla ohf. og Norlandair.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð hefur farið yfir þær athugasemdir sem bárust við grenndarkynningu framkvæmdarinnar og eins umsagnir Isavia Innanlandsflugvalla ohf. og Norlandair.

Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir ábendingar um örnefni og mun taka þær til greina við frekari umfjöllun svæðisins.
Ráðið vísar erindinu til heimastjórnar á Djúpavogi að nýju til frekari umsagnar þess efnis hvort ráðast eigi í nýjan vegslóða.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Djúpavogs - 73. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur beiðni frá umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við vegslóða út á sanda þar sem óskað er umsagnar heimastjórnar þess efnis hvort ráðast eigi í nýjan vegslóða. Grenndarkynningu vegna fyrirhugaðra framkvæmda er nú lokið og bárust 13 umsagnir. Þá liggur fyrir minnisblað þjónustufulltrúa skipulagsmála um framkvæmdina og stöðu málsins. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda og skipulagsfulltrúi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Djúpavogs þakkar Hugrúnu fyrir góða kynningu.
Nú liggja fyrir umsagnir, áætlaður kostnaður og umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, ásamt upplýsingum frá Isavia Innanlandsflugvöllum ehf. um að ekki sé áætlað fjármagn í uppbyggingu og viðhald flugbrautarinnar á Djúpavogi og upplýsingar frá Norlandair um að flugbrautin nýtist ekki til sjúkraflugs. Í ljósi þessa leggur heimastjórn Djúpavogs til að flugbrautin verði aflögð, og þarf þá ekki að ráðast í gerð nýs vegslóða með tilheyrandi raski á svæðinu.
Heimastjórn Djúpavogs vísar málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings og leggur jafnframt til að flugbrautin verði, þegar hún hefur verið aflögð, nýtt sem samgönguleið að söndunum og hvetur umhverfis- og framkvæmdaráð til að vinna drög að skipulagi svæðisins með hliðsjón af breyttri nýtingu þess.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 195. fundur - 05.10.2026

Hafnastjóri situr fundinn undir þessum lið.

Tekið er fyrir að nýju, að lokinni umfjöllun hjá heimastjórn Djúpavogs, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir vegslóða og bílastæði út á sanda á Djúpavogi.

Heimastjórn Djúpavogs bókaði á 73. fundi sínum, að leggja til við umhverfis- og framkvæmdaráð að flugbrautin verði aflögð, og þá í kjölfarið nýtt sem samgönguleið að söndunum og hvetur heimastjórn umhverfis- og framkvæmdaráð til að vinna drög að skipulagi svæðisins með hliðsjón af breyttri nýtingu þess.
Frestað til næsta fundar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 196. fundur - 19.10.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Tekið er fyrir að nýju, að lokinni umfjöllun hjá heimastjórn Djúpavogs, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir vegslóða og bílastæði út á sanda á Djúpavogi.

Heimastjórn Djúpavogs bókaði á 73. fundi sínum, að leggja til við umhverfis- og framkvæmdaráð að flugbrautin verði aflögð, og þá í kjölfarið nýtt sem samgönguleið að söndunum og hvetur heimastjórn umhverfis- og framkvæmdaráð til að vinna drög að skipulagi svæðisins með hliðsjón af breyttri nýtingu þess.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til bókunar heimastjórnar Djúpavogs og framkominna umsagna við grenndarkynningu, að falla frá fyrirhugaðri framkvæmd nýs vegar út á sanda. Jafnframt samþykkir ráðið að óska eftir því við Isavia Innanlandsflugvelli ohf. að flugvöllurinn verði afskráður sem lendingarstaður. Svæðið verði áfram skilgreint fyrir flugvöll í aðalskipulagi, þrátt fyrir að það verði ekki lengur skráð sem lendingarstaður. Heimilt verði áfram að nýta svæðið sem aðkomuleið út á sanda, enda raski sú nýting ekki starfsemi eða skipulagslegri skilgreiningu svæðisins sem flugvallar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?