24.11.2021
kl. 11:25
Könnun vegna utanhússklæðningar á Félagsheimilinu Herðubreið.
Lesa
23.11.2021
kl. 15:56
Á Austurlandi eru nú 17 í einangrun og 23 í sóttkví. Í morgun var sýnataka hjá þeim starfsmönnum sjúkrahússins í Neskaupstað sem voru settir í sóttkví eða smitgát. Niðurstöður ættu að liggja fyrir seint í kvöld.
Lesa
23.11.2021
kl. 09:32
Vinningstillagan var unnin í þverfaglegu samstarfi og eru aðalhönnuðir þær Ástríður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir frá Arkibygg Arkitektum í samvinnu við Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen landslagsarkitekta, Auði Hreiðarsdóttur frá ESJA ARCHITECTURE og Arnar Björn Björnsson frá exa nordic sem sá um burðarvirkjahönnun.
„Einföld, sérstæð og sterk byggingarlist hér á ferð sem dómnefnd telur að geti haft mjög mikið aðdráttarafl og hefur alla burði til þess að bjóða upp á einstaka upplifun“ eins og segir í niðurstöðu dómnefndar.
Lesa
19.11.2021
kl. 11:04
Vekjum athygli á spennandi starfi „án staðsetningar“ hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga. En þeir hyggjast ráða sérfræðing í skólamálum. Umsóknarfrestur rennur út nk. mánudag. 22. nóvember.
Lesa
19.11.2021
kl. 08:58
Kynning á Facebook síðu Múlaþings í dag, föstudaginn 19. nóvember næst komandi klukkan 17:00.
Lesa
18.11.2021
kl. 16:11
Aðgerðastjórn áréttar mikilvægi þess að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima sem eru með einkenni er bent geta til Covid-19 og fara í sýnatöku. Þannig hjálpumst við að við að takmarka útbreiðslu veirunnar.
Lesa
18.11.2021
kl. 16:02
Kynning á Facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 18. nóvember næst komandi klukkan 17:00.
Lesa
18.11.2021
kl. 10:55
Athugið að breyting hefur orðið á úthlutunarferlinu um menningarstyrki og verða skyndistyrkir ekki afgreiddir. Tvær úthlutanir verða hins vegar á árinu 2022. Nú er auglýst vegna fyrri úthlutunar. Síðari úthlutun verður auglýst í ágúst 2022.
Lesa
17.11.2021
kl. 14:23
Minnt er á að til að koma til móts við notendur laugarinnar að einhverju leyti hefur hitinn verið hækkaður í barnalauginni og er rennibrautarlaugin nýtt sem heitur pottur. Er hitastigið í honum í kringum 39 gráður á meðan á þessu stendur.
Lesa
16.11.2021
kl. 10:22
Ekkert nýtt smit hefur greinst á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Margir íbúa fóru hinsvegar í sýnatöku í gær og ætti niðurstaða að liggja fyrir á dag, þriðjudag. Skólahald fyrsta til sjötta bekkjar grunnskólans liggur niðri og mun svo vera í dag einnig meðan niðurstöðu er beðið. Leikskólinn er einnig lokaður í dag.
Þá greindist smit á Egilsstöðum í gær. Ekki er talið að það hafi dreift sér. Smitrakning stendur yfir.
Aðgerðastjórn beinir því til íbúa að gæta að sér í hvívetna enda smit enn að greinast í umdæminu og brýnt að fara varlega sem fyrr.
Lesa