Fara í efni

Skýrsla sveitarstjóra í febrúar: Samgöngur, atvinnulíf og menning

18.02.2026 Fréttir

Mörg og fjölbreytt verkefni hafa verið á borði sveitarstjóra síðustu vikur, eins og Dagmar Ýr fór yfir í skýrslu sinni á fundi sveitarstjórnar 11. febrúar síðastliðinn. Hæst ber vinna við umsögn sveitarfélagsins um tillögu að nýrri samgönguáætlun ríkisins.

Samgöngumál og uppbygging innviða

Í umsögninni er lögð höfuðáhersla á þrjá þætti; að Fjarðarheiðargöng verði aftur sett efst á lista yfir næstu jarðgöng og boðin út án frekari tafa, að hafist verði handa við uppbyggingu heilsársvegar yfir Öxi og að framlag ríkisins til hafnarmála í Múlaþingi verði ekki skert úr 60 í 40%.

Jafnframt er bent á aðra þætti sem saknað er í tillögunni, þar á meðal eru ný Lagarfljótsbrú og nýjar brýr yfir Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá á Breiðamerkursandi sitt hvorum megin við landamæri Austurlands. Kallað er eftir auknu framlagi til tengi- og héraðsvega og bættri vetrarþjónustu, ekki síst á Borgarfjörð eystri. Einnig er kallað eftir skýrari framtíðarsýn um stækkun Egilsstaðaflugvallar. Í umsögninni er minnt á að markvissar samgöngubætur hafi verið ein af forsendum sameiningar sveitarfélaganna í Múlaþingi.

Málefni Seyðisfjarðar hafa verið fyrirferðarmikil undanfarið. Þar er unnið markvisst að eflingu atvinnulífs með aðkomu ráðgjafa sem starfar með hópi á vegum sveitarstjórnar og eru vonir bundnar við að ríkisvaldið komi inn í þessa vinnu til að efla hana enn frekar.

Undanfarið hefur verið unnið að því að koma upp tengibúnaði við höfnina á Seyðisfirði þannig að ferjan Norræna geti tengst rafmagni þegar siglingar hefjast á ný í vor. Það mun verða til þess að draga úr kolefnisspori siglinga ferjunnar.

Á Borgarfirði eystra er hafin vinna við að gera upp gömlu löndunarbryggjuna og eru verklok áætluð síðsumars.

Sveitarfélagið skilaði einnig inn umsögn um nýtt lagareldisfrumvarp sem nú er í samráðsgátt stjórnvalda. Mikilvægt er fyrir sveitarfélög í sambandi sjávarútvegssveitarfélaga að fá heildstæðan ramma utan um greinina og eyða óvissu um ákveðin mál, eins og fiskeldissjóð. Auk þess er hvatt til þess að eftirlitsstörf verði staðsett á þeim svæðum þar sem fiskeldi er stundað.

Nú stendur yfir umfangsmikil vinna við umsóknir í fiskeldissjóð en mikill tímasparnaður væri í því fólginn að sveitarfélögin fengju hlutdeild í þessum fjármunum beint.

Framkvæmdastjórar sveitarfélaga þar sem fiskeldi er stundað skrifuðu og birtu nýlega sameiginlega grein um mikilvægi frumvarpsins.

Menning, samfélag og samstarf

Á sviði almannavarna var haldin skrifborðsæfing á Egilsstöðum í janúar þar sem farið var yfir viðbragðsáætlun við mögulega rýmingu byggðarlags. Við sama tilefni afhenti almannavarnarnefnd björgunarsveitum á Austurlandi styrk í formi skjáa til að bæta aðstöðu í vettvangsstjórnstöðvum sveitanna.

Í húsunum á Vonarlandi eru langt komnar miklar endurbætur á húsnæði Vísindagarðs, sem er sameign sveitarfélagsins og fjármálaráðuneytisins. Gerður hefur verið nýr leigusamningur við Náttúruverndarstofnun sem leigir eitt húsanna fyrir sína starfsemi á svæðinu.

Menningar- og samfélagsmál voru einnig áberandi. Undirritaðir voru styrktarsamningar við Krabbameinsfélag Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Austurlands, auk þess sem byggðaráð úthlutaði tæpum 9 milljónum króna til 30 menningarverkefna í sveitarfélaginu. Þá hlaut Sláturhúsið Menningarmiðstöð 16,7 milljóna króna styrk úr Sviðslistasjóði til að setja upp nýtt frumsamið fjölskylduleikrit sem áætlað er að verði frumsýnt síðla árs 2026.

Sveitarstjóri Múlaþings og bæjarstjóri Fjarðabyggðar hittust í lok janúar á báðum skíðasvæðum sveitarfélaganna, í Oddskarði og Stafdal, og skrifuðu undir samning um áframhaldandi samstarf varðandi skíðasvæðin.

Að lokum má nefna að Degi leikskólans var fagnað með fjölbreyttum hætti þann 6. febrúar, sama dag hlýddu nokkrir starfsmenn sveitarfélagsins á erindið „Áskoranir sameinaðra sveitarfélaga – eru heimastjórnir lausnin?“ og nýverið sótti sveitarstjóri kynningarfund Íslandsstofu á Reyðarfirði um endurskoðaða útflutningsstefnu Íslands.

Fram undan eru meðal annars afhending endurbætts húsnæðis við Fellavöll, frumsýning á söngleik Menntaskólans á Egilsstöðum og áframhaldandi þorrablótsvertíð víðs vegar um sveitarfélagið.

Mynd: Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múla…
Mynd: Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings skrifa undir áframhaldandi samstarfssamning um skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal.
Getum við bætt efni þessarar síðu?