17.05.22
Fréttir
Sumarfrístund á Djúpavogi
Í sumar stendur Múlaþing fyrir sumarfrístund á Djúpavogi í júní til júlí.
Verður áhersla sumarfrístundar að venju á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem gert er í sumarfrístund eru leikir, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir, íþróttir, föndur og fleira.
Forstöðuaðili á Djúpavogi verður Kolbrún Ósk Austmann.