Haustið hefur verið annasamt hjá Múlaþingi. Í skýrslu sveitarstjóra í október er meðal annars fjallað um samgöngumál, heilbrigðisþjónustu, framkvæmdir við hafnir, menningarstarf og fjölbreytt verkefni í sveitarfélaginu.
Hagsmunamál sveitarfélagsins í forgrunni
Fulltrúar Múlaþings hafa átt fundi með Vegagerðinni, þingmönnum kjördæmisins og nefndum Alþingis um mikilvæg hagsmunamál. Þar hafa samgöngumál, vetrarþjónusta, framtíðarmöguleikar Egilsstaðaflugvallar, heilbrigðisþjónusta og fækkun opinberra starfa meðal annars verið til umræðu.
Sérstaklega var rætt við þingmennina um áhyggjur af fyrirhugaðri niðurfellingu tolla af jurtaosti og áhrifum hennar á starfsstöð MS á Egilsstöðum. Sveitarstjóri hafði áður átt fund með forstjóra MS vegna sama máls þar sem hann lýsti áhyggjum af stöðu starfa við mjólkurstöðina ef af þessu verður. Einnig hefur verið lögð áhersla á að sett verði fram skýr stefna um atvinnuhúsnæði á ofanflóðahættusvæði en núverandi staða er hamlandi fyrir atvinnulíf á Seyðisfirði.
Sveitarfélagið hefur jafnframt tekið þátt í umræðu um fjármögnun heilbrigðiseftirlits og yfirfærslu verkefna til sveitarfélaganna en enn ríkir nokkur óvissa um fyrirkomulag og fjármögnun. Þá var undirritað samkomulag um þátttöku Múlaþings í verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar Landlæknisembættið kynnti lýðheilsuvísa 2026 á Egilsstöðum í september.
Á 60 ára afmælishaustþingi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi var samþykkt ályktun þar sem sveitarfélögin kalla eftir breyttri nálgun ríkisins gagnvart Austurlandi og benda á að fjárfesting í innviðum og þjónustu í landshlutanum skili sér í aukinni verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið.
Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðstefnu sveitarfélaga voru meðal annars rædd efnahagsmál, gjaldskrár, menntamál, innviðir og sjálfbærni. Sveitarstjóri Múlaþings var enn fremur kosinn í stjórn nýrra samtaka landbúnaðarsveitarfélaga. Sveitarstjóri tók einnig þátt í ráðstefnu Arctic Circle sem fram fór í Hörpu í Reykjavík.
Fjarskipti og hafnarframkvæmdir
Betur fór en á horfðist þegar rúta með börn á leið á Starfamessu Austurlands í Neskaupstað ók út af á Fagradal. Atvikið vakti athygli á slitróttu símasambandi á svæðinu og því að viðbragðsaðilar náðu ekki Tetra-sambandi. Byggðaráð hefur komið áhyggjum sínum af þessu ástandi á framfæri við Fjarskiptastofu.
Framkvæmdir við endurnýjun gömlu löndunarbryggjunnar á Borgarfirði standa yfir en verkið reyndist umfangsmeira en áætlað var vegna ástands bryggjunnar. Á Seyðisfirði var nýr raftengibúnaður fyrir Norrænu vígður á Strandarbakka. Búnaðurinn gerir ferjunni kleift að tengjast rafmagni frá landi og draga þannig úr losun. Þá hefur fyrirhuguð lenging Strandarbakka vakið áhuga skemmtiferðaskipafélaga en tveir fulltrúar Múlaþings sóttu nýverið ráðstefnuna SeaTrade Med á Las Palmas.
Líflegt menningarstarf
Menningarlíf hefur verið fjölbreytt í haust. Baugur Bjólfs á Seyðisfirði hefur verið tilnefndur til alþjóðlegu Dezeen-verðlaunanna og BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, bauð upp á yfir 30 opna viðburði. Á Djúpavogi var Cittaslow sunnudagur haldinn hátíðlegur í lok september.
Haustsýningar hafa verið opnaðar í Skaftfelli og Sláturhúsinu, Leikfélag Fljótsdalshéraðs fór af stað með farandsýninguna Blakkát í tilefni 60 ára afmælis félagsins og söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum kynntu starfsemi sína í Brúarási. Byggðaráð úthlutaði jafnframt menningarstyrkjum til 13 verkefna, samtals að fjárhæð 2,2 milljónir króna.
Viðurkenningar og tímamót
Héraðsprent á Egilsstöðum stendur á tímamótum eftir 54 ára starf Þráins Skarphéðinssonar og Gunnhildar Ingvarsdóttur sem hyggjast setjast í helgan stein og færði sveitarstjóri hjónunum þakklætisvott fyrir þjónustuna í gegnum árin. Vegagerðin í Fellabæ fagnaði endurbættu húsnæði og bættri vinnuaðstöðu með reisugilli þann 1. október þar sem sveitarstjóri flutti ávarp.
Drífa Magnúsdóttir umsjónarkennari í Egilsstaðaskóla hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi kennslu í Byrjendalæsi og Jónína Lovísa Kristjánsdóttir sérkennari og kennsluráðgjafi hefur verið tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Múlaþing hlaut einnig viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar sjöunda árið í röð.
Fram undan
Í Sláturhúsinu verður ljósmyndasýningin Ég er someone eftir Juanjo Ivaldi opnuð og æfingar standa yfir á fjölskyldusöngleiknum Vinir Egils skalla eftir Karl Ágúst Úlfsson, sem verður frumsýndur 15. nóvember.
Á næstu dögum fara fram Hafnarsambandsþing í Reykjanesbæ og málþing um byggðarannsóknir sem verður í beinu streymi. Stjórnendafundur Múlaþings verður á degi myrkurs 30. október og að sjálfsögðu verða stjórnendur hvattir til að mæta í búningi í tilefni hrekkjavökunnar sem er daginn eftir.