Í nóvemberskýrslu sveitarstjóra Múlaþings er farið yfir fjölbreytt verkefni og málefni sem hafa verið til umræðu og vinnslu undanfarnar vikur. Þar ber meðal annars að nefna undirbúning fjárhagsáætlunar, almenningssamgöngur, skólamál, öryggismál á Seyðisfirði og fjölbreytt menningarstarf í sveitarfélaginu.
Bakkagarður tilbúinn - mikilvægur áfangi í öryggi Seyðfirðinga
Í byrjun nóvember lauk byggingu Bakkagarðs, þriðja og síðasta varnargarðsins undir Bjólfi. Þar með hefur náðst mikilvægur áfangi í uppbyggingu ofanflóðavarna á Seyðisfirði. Nú tekur við lokafrágangur svæðisins samhliða áframhaldandi undirbúningi aurflóðavarna sunnan megin í firðinum.
Almenningssamgöngur og ábyrgð í heilbrigðiseftirliti
Á fundi með Vegagerðinni um nýtt útboð vegna almenningssamgangna á Austurlandi kom fram að leiðin milli Egilsstaða og Borgarfjarðar er því miður áfram utan leiðarkerfis strætó. Jafnframt var tilkynnt um frekari skerðingu á leiðarkerfinu á Austurlandi. Sveitarstjóri leggur áherslu á að taka þurfi kerfið til gagngerrar endurskoðunar svo almenningssamgöngur þjóni notendum betur og hvetji fleiri til að nýta sér þær.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands mun leggjast af í núverandi mynd um áramótin og því þarf að tryggja að þau verkefni þess sem eftir verða hjá sveitarfélögum komist í farveg. Enn eru ýmis atriði óljós, meðal annars hver beri ábyrgð á eftirliti með vatnsveitu. Unnið er að lausnum til að tryggja samfellu í þjónustu við notendur eftirlitsins.
Ungmennaráð skilar góðu starfi
Árlegur fundur sveitarstjórnar og ungmennaráðs fór fram 21. október. Þar skilaði fráfarandi ungmennaráð af sér vinnu síðustu tveggja ára og kynnti helstu áherslumál sín. Nýtt ungmennaráð Múlaþings hefur nú verið skipað.
Á fundinum sögðu ungmennin meðal annars frá Erasmus-ferð til Finnlands þar sem þau hittu fulltrúa ungmennaráða frá öðrum Evrópulöndum og byggðu upp tengslanet. Einnig kynntu þau hugmyndir og áherslur á sviði samgöngumála, öryggismála, afþreyingar, uppbyggingar íþróttamannvirkja og fleira. Fundurinn var málefnalegur og munu sjónarmið ungmennanna nýtast kjörnum fulltrúum við forgangsröðun verkefna.
Ungmennaráð er mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að hafa áhrif á samfélagið, koma hugmyndum sínum á framfæri og taka þátt í lýðræðislegri umræðu.
Leikskólapláss fyrir öll börn á biðlista
Góðar fréttir bárust frá leikskólanum Tjarnarskógi á Egilsstöðum en öllum börnum sem biðu þar eftir leikskólaplássi hefur verið úthlutað plássi og fer aðlögun þeirra að hefjast. Erfiðlega hefur gengið að manna stöður, meðal annars vegna þess að óvenju margir starfsmenn hafa verið í fæðingarorlofi eða eru á leið í það.
Fiskeldissjóður, húsnæðisuppbygging, skólamál og fleira
Rætt var um úthlutunarreglur Fiskeldissjóðs og breytingar sem sveitarfélög vilja sjá á starfsemi sjóðsins á fundi á vegum innviðaráðuneytis um miðjan október.
Á árlegum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Austurlandi, sem haldinn var á Reyðarfirði 3. nóvember, kynnti sveitarstjóri stöðu framkvæmda í Múlaþingi og húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Þar er áhersla lögð á uppbyggingu minni og meðalstórra íbúða. Einnig var fjallað um mikilvægi þess að efla Egilsstaði sem öflugan þjónustukjarna fyrir Austurland allt, þar sem uppbygging nýs miðbæjar gegnir lykilhlutverki.
Fulltrúar Múlaþings áttu einnig uppbyggilegt samtal við forystu Kennarasambands Íslands um stefnumótun í menntamálum og skólastarf í sveitarfélaginu. Rætt var um öll skólastigin, leik-, grunn- og framhaldsskóla auk tónlistarskóla.
Sveitarstjóri flutti ávarp á viðburði Krabbameinsfélags Austurlands á bleika deginum 21. október og tók nokkru síðar þátt í málþingi við Háskólann á Akureyri til heiðurs fyrrum kennara sínum Birgi Guðmundssyni prófessor í fjölmiðlafræði.
Verkefni á sviði hafnarmála
Fulltrúar Múlaþings sóttu Hafnasambandsþing í Reykjanesbæ dagana 22.–23. október. Þar var Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar kjörin formaður Hafnasambandsins og er fyrst kvenna á Íslandi til að gegna því embætti.
Markaðsstjóri hafna Múlaþings sótti einnig ráðstefnu AECO, samtaka leiðangursskipa, í Ósló. Þar var meðal annars fjallað um ábyrgar leiðangursskipasiglingar, umhverfisvernd og ávinning nærsamfélaga af móttöku skipanna. Þátttakan gaf tækifæri til að efla tengsl við útgerðir og áfangastaði og dró fram tækifæri fyrir Djúpavog og Borgarfjörð eystri.
Áhyggjur eru þó af miklum samdrætti í bókunum leiðangursskipa til íslenskra hafna vegna skattaumhverfis greinarinnar á Íslandi. Cruise Iceland vinnur að því að leysa úr þessu með stjórnvöldum, enda hefur þróunin mikil áhrif á tekjur hafna, ríkissjóðs og atvinnulífs í þeim samfélögum sem taka á móti skipunum.
Menningarlíf í sveitarfélaginu
Haustið hefur verið viðburðaríkt í menningarlífi Múlaþings. Í Sláturhúsinu stendur yfir ljósmyndasýningin Ég er someone og í Skaftfelli er sýningin Dreymendur og draumgjafar, samsýning fimm listakvenna sem stendur til 4. desember.
Byggðahátíðin Dagar myrkurs fór fram dagana 26. október til 1. nóvember með fjölbreyttri dagskrá um allt Austurland. Sérstaklega var mikið um að vera á Djúpavogi þar sem boðið var upp á viðburði fyrir alla aldurshópa.
Hin nýstofnaða þjóðarópera hélt tónleika í tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði 25. október ásamt Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Óperukór Austurlands. Þá fór málþingið Hvernig á að hlusta á fjall fram í Skaftfelli 7. nóvember, þar sem skoðað var hvernig bregðast megi við loftslagsbreytingum með því að sameina krafta lista, vísinda og staðbundinnar þekkingar.
Í Safnahúsinu á Egilsstöðum stendur nú yfir viðburðaröðin Róvember, sem er hugsuð sem mótvægi við jólastress og afsláttardaga. Þar verður meðal annars boðið upp á jóga, húslestur og lengri opnunartíma bókasafnsins fyrir fullorðna á ákveðnum dögum. Bókasafn Múlaþings hefur jafnframt staðið fyrir sögustundum við varðeld á öllum starfsstöðvum sínum nú í haust í samstarfi við Náttúruskólann.
Fjölbreyttir viðburðir framundan og nýliðnir
Næstu vikur verður ýmislegt um að vera í Múlaþingi. Haustfundir heimastjórna fara fram á Borgarfirði, Seyðisfirði, Djúpavogi og Fljótsdalshéraði, þar sem íbúum gefst kostur á að ræða málefni síns nærsamfélags.
Matarmót Austurlands var haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum en þar gefst framleiðendum á Austurlandi tækifæri til að kynna vörur sínar og sýna þá grósku sem er í matvælaframleiðslu á svæðinu.
Sunnudaginn 15. nóvember var nýr íslenskur fjölskyldusöngleikur Vinir Egils Skalla frumsýndur í Sláturhúsinu. Söngleikurinn er saminn sérstaklega fyrir Sláturhúsið af Karli Ágústi Úlfssyni og leikstýrt af Ágústu Skúladóttur. Meðal leikenda eru ungir leikarar úr heimabyggð.
Þá leggur hin árlega Rithöfundalest af stað 26. nóvember og munu rithöfundar heimsækja meðal annars Seyðisfjörð og Djúpavog, auk þess að lesa fyrir nemendur í skólum og íbúa á dvalarheimilum.
Að lokum er vert að vekja athygli á því að Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, kennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings, var tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi kennara. Tilnefningin er ánægjuleg viðurkenning á mikilvægu starfi í þágu menntunar og skólasamfélagsins.